ATAFL ehf. er öflugur alhliða verktaki býr yfir viðurkenndri sérþekkingu og starfar víðsvegar um landið. Verkefnin er fjölþætt og spanna víðtækt svið en sérgrein fyrirtækisins er mannvirkjagerð, viðhald og endurnýjun.
Starf fyrirtækisins er metnaðarfullt og beinist stöðugt að því að bæta og treysta þjónustu við viðskiptavini ásamt því að auka hagkvæmni. Rík áhersla er lögð á gæði í verki, áreiðanleika og vandaða þjónustu. Sá árangur hefur náðst með vel skilgreindum markmiðum, skýrum verklagsreglum og nákvæmum áætlunum.
Fyrirtækið leggur áherslu á háan siðferðilegan staðal og virðingu fyrir félagslegum skyldum.Öryggi og umhverfisvernd er í hávegum haft, jafnt í orði sem í verki enda leita aðilar með svipuð viðhorf gjarnan viðskipta við fyrirtækið.
Fjölmörg verka ATAFLS hafa vakið athygli, bæði vegna vandaðra vinnubragða og einnig hversu vel fyrirtækinu hefur tekist að halda áætlanir varðandi kostnað og afhendingu.