Atafl hefur falið Fasteignasölunni Ás og Fasteignasölunni Mikluborg sölu á raðhúsunum að Byggakri 1-9. Raðhúsin eru um 228 fermetrar að stærð, 4-5 herbergja. Húsin eru afhent tilbúinn til innréttinga samkvæmt nánari lýsingu Athúsa að innan, en fullbúin að utan. Lóð verður tyrfð og gengið frá hellulögn við bílastæði, inngang og verönd. Húsin eru teiknuð af Sigurði Hallgrímssyni hjá Arkþingi og þykja einstaklega vel hönnuð.
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um eignina með því að smella hér. Söluvefur Byggakurs.